Henný&Helga
20.08.2006 19:26:18 / h

18.ágúst

Afmælið mitt var á föstudaginn og ég átti mjög fínan dag í þetta skiptið, langt síðan ég hef verið heima á afmælinu og það var eiginlega miklu skemmtilegra. Byrjaði reyndar ekki mjög vel þar sem ég svaf yfir mig. En það var útaf því síminn var á fullu þar sem mamma og stelpurnar voru allar að senda eitthvað og ég var að reyna að fara að sofa og fiktaði eitthvað í símanum og þá hringdi vekjaraklukkan ekkert.
En í vinnunni var mjög gaman því gamla fólkið söng fyrir mig og ég fékk köku ",
Svo var læri í matinn heima og svo fór ég til Lilju og allar gellurnar komu þangað og þær voru líka búnar að baka og svo var kex&ostar og hvítvín. Ég fékk líka ótrúlega flottar gjafir!

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 21:08:50 / h

einmanna kleina útí horni..

Afhverju er enginn búinn að skrifa í gestabókina hérna síðan í mars? Mér finnst það svona hálf-lélegt þar sem ég er að gera mitt besta í því að halda lífi í þessu öllu saman :)

Ég er alveg búin að sjá það að íslendingar eru frekastir í heiminum! En útlendingar eru ekkert smá vitlausir, auðvitað ekki allir. Alltaf til undantekningar, en svona upp til hópa. Hvort er betra að vera vitlaus eða frekur? Ég kýs vitlaus..

Henný senjorita eftir 26 daga!

» 8 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 20:38:15 / h

nei held nú ekki..

Helga Heiðdís Sölvadóttir núna er ég að skamma þig! Þú kemur ekkert bara með svona yfirlýsingar án þess að ræða við mig, við erum ekkert hættar, við vorum bara í sumarfríi..Smá svona afsökun en ég ætla að halda áfram var búin að lofa Helgu Rún það, þar sem hún heyrir aldrei í mér lengur þá lofaði ég að blogga til þess hún gæti fylgst með lífinu mínu. Væri nú ómögulegt ef ég væri bara komin með barn og buru og hún bara veit ekkert! Ég er að þrjóskast við þetta líka vegna þess að ég ætla að skrifa þegar ég er úti.
Sjiiiiiit hvað mér hlakkar til komast úr þessari holu minni sem ég er búin að vera í í allt sumar og fara til Spánar og lifa lífinu :D
þarna erum við Mummi að leiðast á ströndinni hahaha..8|

En það er nú ekki mikið að frétta er bara að vinna alltaf en er komin með bílprófið mitt finally :D hehe og svo á ég afmæli á föstudaginn! 18 ára gellan þann 18. ágúst..

Not giving up! Henný penný..

» 7 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 22:22:52 / h

:'(

Þessi síða er steindauð.

Fyrir æstustu aðdáendur okkar þá höfum við flutt okkur á google.com

Takk fyrir allt,

Helga og Henný



 

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 01:05:48 / h

sakna þín,

elska þig ;*

kv.helga


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 22:51:30 / h

:)

Vil óska Alexöndru innnnilega til hamingju með áfangann sinn stóra sem hún var að klára stelpan! Hún er orðin stúdent, ekkert smá klár og dugleg stelpan :) við jafn gamlar og hún búin og ég á leið í frí og bara rétt hálfnuð hehe.. En ekkert smá frábært hjá henni! :) Veislan var hjá henni í gær og bara mjög gaman, gaman að hitta gömlu félagana aftur, Védísi og svona sem maður hefur ekki séð í mjög langann tíma.
Takk fyrir mig Alex mín ;*

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 21:47:13 / h

jabídsí

Langt síðan eg hef mætt hingað. En fyrst eg er hætt að nenna útur husi er eins gott að lata vita af ser herna. :) Ég er bara alltaf með gamla fólkinu mínu sem eru mestu dúllur í heimi. Eeeeeelska þessa vinnu :) hun er best!

Við mummsli áttum 2 ára afmæli í vikunni, ótrúlegt hvað timinn er fljótur að líða hehe :) af tilefninu fórum við í reykjavík og fórum til hennar Huldu sætu minnar :) í hnakkapartý ársins =) vá það er ekkert eðlilegt hvað það er mikill munur á reykvíkingum og keflvíkingum..mer finnst eg alltaf líta út eins og 2ja ára krakki við hliðiná þessu fólki. Fínasta fólk og mjög gaman af því, en smekkur manna er bara misjafn :) hehe eg sé það í anda að sjá gaur í Kef í hvítum buxum á djamminu..

Styttist í Spánarferðina, við erum komin á gott ról með að plana eiginlega búin að finna skóla og alles, allavega buin að akveða staðinn og það verður Valencia. Vonumst til að sem flestir komi í heimsókn til okkar. verðum i sirka 3 mánuði..

En fyrst er að eyða sumrinu og afla peninga, fyrsta almennilega ferðalag sumarsins er stefnt á næstu helgi, færeyskir dagar..ætlar ekki fólkið þangað? :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 04:28:29 / h

mjáá..

alltaf næ ég að snúa sólarhringnum við,, get ekki sofnað glápti á murder by numbers á stöð 2 og hún var alveg ágætis afþreying.. nettir gaurarnir hehe. En ég er komin í vikufrí í vinnunni eða ég er í fríi næstu helgi.

- eru einhverjir að fara á bíladaga á ak. næstu helgi?

En já 2 stór afmæli.. Aron og Bjartmar báðir orðnir 20 núna;) aron 31 maí og bjartur 9júní. Svo fullorðnir ;)

en stelpur hverjar eru game að fara í útilegu allar saman, eða bústað eða eitthvað langar svo að láta rætast úr sumrinu? :)

mmmm..heitur
helga

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 15:25:36 / h

..

                                          


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 15:22:42 / h

veik:(

Góðan daginn. Ég er veik, búin að vera það síðan á mánudaginn. Hata það!

Ég er byrjuð í nýju vinnunni minni, hún er yndisleg..vá ég hefði aldrei hugsað mér að þetta væri svona skemmtilegt og mikið tjill. Bara mæta klukkan 8 og gefa gamla fólkinu að borða og lesa blöðin og fara í leikfimi með þeim og svo bara hádegismatur og svo er allskonar, naglalakka konurnar og setja í þær rúllur og svona :D Vá hvað ég ætla að fara þangað þegar ég verð gömul og láta dekra við mig. ´

Prófin gengu bara vonum framar, nenni samt ekki að tala um það.

Annars erum við að byrja að plana hvernig spánarferðin okkar í vor verður, fara að finna skóla og svona :) díííí ég hlakka svo til! :D Við ætlum samt að byrja á því að tjilla fara á hótel og svona í kannski 2 vikur í endann ágúst svo verður það bara "harkan" hehe skóli í 4 tíma á dag svo ut í sólbað, vá þetta verður svo erfitt líf!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 20:18:17 / h

helga töff

8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 01:29:02 / h

sumarið er tíminn..

..timinn fyrir hvað?

af hverju er ég ekki svona bjartsýn fyrir sumarið eins og allir aðrir, mér gekk hræðilega í prófunum, langar ekki að sækja einkannirnar, einkunnirnar...? eink. mínar það er ekki góð byrjun á sumrinu. Var í þjálfun í vinnunni á föstudainn eftir prófin, rosalega gaman. Svo lært alla helgina eða "alla" helgina fyrir sjúkrapróf.

Svo skipti ég um vaktir þannig að ég er líka að vinna næstu helgi, þegar eurovisjón er og allt a ske bara. Af hverju er ég ekki spennt, ég veit að þetta sumar verði betra en hitt sem ég var föst bakvið búðarkassa allt sumarið í bónus,, vá aldrei aftur ALDREI! hehe

Vill einhver segja mer að sumarið sé tíminn.. fyrir... uhh

ég veit a það á eftir að vera skemmtilegt en ég þarf einhvern til að segja mér það ;)

Eeeendilega commenta fólk og segja mér hvað sumarið á eftir að vera yndislegt ..


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 22:01:57 / h

Jeijó

Við hittumst allar í dag að ákveða hvað við skyldum gefa Eddu í afmælisgjöf. Náðum loks niðurstöðu. Af því við elskum hana svo mikið ætlum við að gefa henni surbahar. Til hamingju með afmælið Edda í lok næsta mánaðar

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 18:08:23 / h

-

Þessi síða er að deyja.

Oj.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14